Matur
-
LESA MEIRA
Stundum þarf ekki að finna upp hjólið til að útbúa virkilega góðan kvöldmat. Hér nota ég vegan snitsel frá Ellu Stínu sem grunn að klassískri máltíð með stökkum ofnbökuðum kartöflum, fersku hrásalati og kaldri dill- og sítrónusósu. Sítrónan gefur bæði salatinu og sósunni ferskt og létt bragð sem passar einstaklega vel með stökku snitselinu. Það er…
-
LESA MEIRA
Ég er mjög hrifin af sætum kartöflum og man vel eftir því að hafa smakkað þær í fyrsta sinn. Þær eru náttúrulega sætar, mjög mettandi og einstaklega næringarríkar. Mér finnst því tilvalið að nota þær sem grunn í staðinn fyrir t.d. hrísgrjón eða tortillur. Í uppskriftinni eru sætu kartöflurnar bakaðar þar til þær verða mjúkar…
-
LESA MEIRA
Fyrir nokkrum árum fór ég á veitingastað í Búdapest þar sem ég smakkaði í fyrsta sinn Baba Ganoush og Muhammara ídýfu. Ég féll strax fyrir þessum réttum og eftir að ég kom til baka hef ég gert ýmsar tilraunir. Í grunninn er baba ganoush mjög líkt hummus en í stað kjúklingabauna er bakað eggaldin. Lykillinn…
-
LESA MEIRA
Þessi réttur er ekki einungis skemmtilegur útlitslega (fullkominn fyrir næsta matarboð) heldur er bragðið, ótrúlegt en satt, betra en útlitið gefur til kynna! Þessi uppskrift kemur svo innilega á óvart og eru þessar ofnbökuðu paprikur með quinoafyllingu orðnar einn af reglubundnum réttum heimilisins. Ég held að lykillinn við bragðið felist í tveimur atriðum. Annars vegar…
-
LESA MEIRA
Fullkomin uppskrift fyrir kaldari mánuði ársins. Þennan pottrétt er ótrúlega einfalt að útbúa og bragðið er dásamlegt. Ég var ekki alveg viss um hvort ég ætti að kalla réttinn Chili sin carne eða Chili con carne vegna þess að notast er við vegan hakk. Þannig er uppskriftin vissulega kjötlaus en bragðast þó eins og Chili…
-
LESA MEIRA
Poke skál er eins konar ósamsett sushi. Í stað þess að rúlla hráefnunum upp í lengju og skera í bita er hráefnunum raðað í skál og niðurstaðan er dásamleg! Poke skál gefur okkur þannig svipaðan bragðprófíl og sushi en er miklu einfaldari í gerð og hollari þar sem hlutfall og fjölbreytni grænmetis er talsvert meiri.…
-
LESA MEIRA
Ég kynntist þessum pastarétti upprunalega hjá systur minni sem eldaði dásamlega bragðgóðan og ofureinfaldan pastarétt þar sem sósan samanstóð fyrst og fremst af tómötum í dós og matreiðslurjóma. Við það að blanda matreiðslurjómanum út í klassíska marinara sósu urðu einhverjir töfrar til og bragðið er tekið á næsta stig. Eins og þið eflaust vitið stóðst…
-
LESA MEIRA
Seinustu helgi fór ég á bændamarkað Krónunnar og var virkilega glöð að sjá nýupptekið, umbúðalaust blaðkál (e. bok choy/pak choi) en þetta fagurgræna kál sem vex í litlum knippum er mikið notað í asískri matargerð. Mér finnst svo frábært að þetta sé ræktað hérlendis en ég er orðin sjúk í það. Kálið er einfalt að…
-
LESA MEIRA
Ég held ég geti með sanni sagt að þessi sveppasúpa sé uppáhalds matur mannsins míns. Hvort sem hún er í forrétt eða aðalrétt þá get ég stólað á að hann klárar súpuna upp til agna! Lykillinn liggur í því að sveppirnir eru í stórum bitum og steiktir ásamt lauknum og hvítlauknum. Þannig draga þeir í…
-
LESA MEIRA
Veðrið seinustu daga hefur fengið mig til að trúa því að sumarið sé loksins að láta sjá sig. Þá er sannarlega við hæfi að birta hugmynd að vegan grillveislu ásamt uppskrift að geggjuðu hrásalati! Ég elska vegan vörurnar frá Ellu Stínu sem passa fullkomlega við hvernig mat ég vil borða og mín gildi svo ég…
-
LESA MEIRA
Við fjölskyldan erum þessa dagana að flytja í íbúðina okkar og náum páskafríi á nýja staðnum. Ég ákvað að fagna flutningum og skírdegi með því að bjóða fjölskyldunni minni í mat. Eins og þau sem hafa flutt þekkja eflaust þá eru enn fæstir hlutir á sínum stað og lítið til í eldhúsinu svo mig langaði…
-
LESA MEIRA
Þessi uppskrift er með óhefðbundnu sniði þar sem mig langaði að sýna ykkur fjóra rétti úr nokkrum af vegan vörunum frá Ellu Stínu: Aspassúpu með snöggsteiktum aspas, Hollustuborgara með pikkluðum rauðlauk og stökkum kartöflubátum, Tacos með sveppa- og svartbaunabuffi og grænni kóríandersósu og loks döðluköku með karamellukremi. Þessi færsla snýr því meira að því að…