Vegan snitsel með ofnbökuðum kartöflum, hrásalati og dill-sósu

Stundum þarf ekki að finna upp hjólið til að útbúa virkilega góðan kvöldmat. Hér nota ég vegan snitsel frá Ellu Stínu sem grunn að klassískri máltíð með stökkum ofnbökuðum kartöflum, fersku hrásalati og kaldri dill- og sítrónusósu. Sítrónan gefur bæði salatinu og sósunni ferskt og létt bragð sem passar einstaklega vel með stökku snitselinu.

Það er svo frábært að hafa möguleikann á að nýta tilbúnar vegan vörur sem einfalda matargerðina og leyfa manni að einbeita sér að góðu meðlæti og bragðgóðri samsetningu. Snitselið frá Ellu Stínu er í aðalhlutverki í þessum rétti og með því að steikja það á pönnu þar til það verður gullið og stökkt verður það virkilega djúsí! Með sítrónubátum til að kreista yfir, ferskri steinselju og kaldri sósu verður útkoman sérstaklega góð.

Með snitselinu ber ég fram ofnbakaðar kartöflur sem eru einfaldlega skornar í bita, blandaðar með ólífuolíu og salti og bakaðar þar til þær eru gullnar að utan og mjúkar að innan. Mér finnst gott að bera fram nóg af fersku grænmeti með svona máltíð og hér fær hrásalatið að njóta sín. Það er gert úr rauðkáli, hvítkáli og gulrótum og er bragðbætt á einfaldan hátt með ferskum sítrónusafa og salti.

Hvítkál og rauðkál tilheyra krossblómaættinni sem er vanmetið hollustufæði. Þetta grænmeti er næringarríkt og inniheldur trefjar, vítamín. Það merkilegasta við krossblómaættina er að ákveðin plöntusambönd í þessu grænmeti geta haft áhrif á líffræðilega ferla í líkamanum, þar á meðal varnarferli frumna. Hvítkál er góð uppspretta C-vítamíns, en rauðkál inniheldur auk þess anthósýanín, sem eru litarefni úr hópi flavónóíða og gefa því einkennandi fjólubláan lit. Trefjarnar í grænmetinu styðja við eðlilega meltingu og C-vítamín gegnir meðal annars mikilvægu hlutverki í eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Gulrætur innihalda beta-karótín, sem líkaminn getur umbreytt í A-vítamín eftir þörfum. A-vítamín er meðal annars mikilvægt fyrir sjón og eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.

Dill- og sítrónusósan er einföld en ómissandi að mínu mati. Vegan sýrður rjómi myndar rjómakenndan grunn, ferskt dill bætir við mildum kryddjurtakeim og sítrónusafinn gefur sósunni ferskleika. Ég myndi ekki sleppa sítrónubátunum við framreiðslu – smá kreista yfir snitselið rétt áður en maður byrjar að borða gerir mikið fyrir bragðið.

Þetta er einföld og ljúffeng vegan máltíð sem hentar vel á virkum dögum, þegar mann langar í klassískan heimilismat án mikillar fyrirhafnar. Með stökkum kartöflum, fersku og næringarríku hrásalati og góðri sósu verður útkoman bæði litrík og bragðgóð.

Prenta uppskrift

Hráefni (fyrir 2-3):

Snitsel og kartöflur:

  • 2 pakkar Vegan snitsel frá Ellu Stínu
  • 400-500 g kartöflur
  • 1-2 msk. ólífuolía
  • salt, eftir smekk
  • fersk steinselja, til að strá yfir
  • sítróna, skorin í bita

Hrásalat:

  • 1/4 stk. hvítkálshaus
  • 1/4 stk. rauðkálshaus
  • 2-3 stórar gulrætur
  • 1/2 stk. sítróna, safinn kreistur úr
  • salt, eftir smekk

Dill-og sítrónusósa:

  • 3 msk. vegan sýrður rjómi, t.d. Oatly
  • 1-2 msk ferskt dill, smátt saxað
  • 1/2 sítróna, safinn kreistur úr
  • salt, eftir smekk

Aðferð:

Ofnbakaðar kartöflur:

  • Hitið ofninn í 200°C með blæstri. Skerið kartöflurnar í bita, dreifið ólífuolíu og salti yfir og setjið kartöflurnar í eldfast mót. Bakið í 30–40 mínútur, eða þar til þær eru gullnar og stökkar að utan. Snúðu þeim við einu sinni á meðan á bakstri stendur.

Hrásalat:

  • Skerið hvítkálið og rauðkálið í þunna strimla og rífið gulræturnar. Blandið öllu saman í skál ásamt sítrónusafa og salti. Smakkið til og bætið við meiri sítrónu eða salti eftir þörfum. Ef þið viljið er gott að saxa steinselju og bæta við.

Dill- og sítrónusósa

  • Blandið vegan sýrða rjómanum, smátt söxuðu dillinu og sítrónusafanum saman í lítilli skál. Kryddið með salti og smakkið til. Geymið í kæli þar til maturinn er borinn fram.

Snitsel:

  • Steikið snitselið á pönnu upp úr olíu við meðalhita, um 4 mín á hvorri hlið þar til það er gullbrúnt og stökkt. Einnig má baka það í ofni samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.

  • Berið snitselið fram með ofnbökuðum kartöflum, hrásalati og sósu og stráið ferskri steinselju yfir snitselið. Ekki gleyma sítrónubátunum!

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift