Pastarétturinn sem allir elska

Ég kynntist þessum pastarétti upprunalega hjá systur minni sem eldaði dásamlega bragðgóðan og ofureinfaldan pastarétt þar sem sósan samanstóð fyrst og fremst af tómötum í dós og matreiðslurjóma. Við það að blanda matreiðslurjómanum út í klassíska marinara sósu urðu einhverjir töfrar til og bragðið er tekið á næsta stig.

Eins og þið eflaust vitið stóðst ég þó ekki mátið að auka næringargildið og laumaði því smá grænmeti og rauðum linsubaunum í sósuna. Það kemur alls ekki niður á bragðinu og eykur hollustu máltíðarinnar verulega. Punkturinn yfir i-ið er svo heimagerður parmesanostur úr ristuðum kasjúhnetum, hvítlauk, næringargeri og salti. Ef þið eruð ekki enn komin á næringargers vagninn legg ég til að prófa það strax! Næringarger er notað sem bráðhollur bragðbætir eða krydd í ýmsa matargerð. Duftið hefur hnetu-ostakeim og hentar því vel þegar á að ná fram ostabragði.

Það besta við réttinn, eins og titillinn gefur til kynna, er að hann hentar við öll tækifæri og allir elska hann! Fyrir rómantískt stefnumót er fullkomið að bera fram baguette og ólífuolíu ásamt ferskri basiliku og jafnvel hvítvínsglasi en svo er líka um að gera að leyfa einfaldleikanum að njóta sín. Mínir tveggja og þriggja ára stúfar vildu ekkert snobb og hökkuðu réttinn í sig án nokkurra fínheita. Upplagt er að útbúa tvöfalt magn af sósunni og frysta en þá er fljótlegt að skella í hollan kvöldverð þegar tíminn er naumur.

Verði ykkur að góðu!

Prenta uppskrift

Hráefni (fyrir 4):

Pastaréttur:

  • 300 g pasta
  • 1 msk. olía
  • 1 gulur laukur
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 1 rauð paprika
  • 4 stórar gulrætur
  • 1 dl rauðar linsubaunir
  • 1 dós maukaðir tómatar, t.d. San Marzano tómatar
  • 2-3 msk. tómatpúrra
  • 250 ml Oatly matreiðslurjómi
  • 1 grænmetisteningur
  • salt og pipar
  • 2 tsk. þurrkuð ítölsk krydd, t.d. basil og oregano (endilega nota ferskar kryddjurtir í staðinn)

Kasjúhnetu parmesan:

  • 1 dl kasjúhnetur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk. næringarger, eða eftir smekk
  • 1/2 tsk. salt

Aðferð:

Pastaréttur:

  • Hitið pönnu eða pott með olíu. Saxið lauk og hvítlauk smátt og mýkið í olíunni.

  • Skolið linsubaunirnar vel og bætið þeim út á pönnuna. Saxið papriku og rífið gulrætur smátt og bætið einnig saman við. Steikið við vægan hita þar til grænmetið er mjúkt.

  • Kryddið og bætið tómötum í dós, tómatpúrru og matreiðslurjóma saman við

  • Leyfið sósunni að malla á meðan pastað er soðið. Hér má mauka sósuna með töfrasprota en ég sleppti því.

  • Þegar pastað er næstum því soðið í gegn legg ég til að setja það út í sósuna ásamt örlitlu pastavatni og leyfa því að fulleldast í sósunni.

  • Berið réttinn fram með kasjúhnetu parmesanostinum, góðri ólífuolíu og jafnvel ferskri basiliku og baguette brauði.

Kasjúhnetu parmesan:

  • Þurrristið kasjúhneturnar á pönnu eða í ofni þar til þær eru gullnar að lit.

  • Saxið eða pressið hvítlaukinn og setjið svo öll hráefnin saman í blandara og blandið þar til fínmalað.

  • Geymið kasjúhnetu parmesan ostinn í kæli.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift