Vegan slátur (kátur)

Frá því ég var lítil hefur slátur alltaf verið einn uppáhaldsmaturinn minn. Ég saknaði þess þó ekkert sérstaklega eftir að ég varð vegan. Það breyttist þó þegar ég varð ólétt og skyndilega varð ég að fá slátur. Eins og svo oft áður fórum við mamma af stað í tilraunamennsku og úr varð þessi dásamlega uppskrift sem kemur verulega á óvart.

Kátur er nafnið sem við völdum fyrir vegan slátur því allir eru kátir, dýrin sem sleppa við sláturhúsið og mannfólkið sem getur borðað góðan mat.

Uppskriftin að blóðmörinni kemur úr tilraunaeldhúsi mömmu en uppskriftin að lifrarpylsunni er fengin með smávægilegum breytingum úr facebook hópnum Vegan Ísland (takk, Ásthildur og Claus). Uppistaðan í báðum káturkeppunum eru baunir, rúgmjöl og blómkál. Til að fá litinn og járnbragðið í blóðmörinn eru notaðar rauðrófur og spínat (mæli einnig með að nota örlítið af floradix, vegan járnmixtúru) en í lifrarpylsuna eru notaðir blandaðir sveppir eða villisveppir (hægt að kaupa frosna eða þurrkaða). Kókosolía gefur fitu í uppskriftina og heldur hráefnunum saman en blómkálið myndar mörinn (fitubitana) sem einkennir einmitt hefðbundið slátur. Við prófuðum ýmsar leiðir við að elda kátrið, svo sem að sjóða það í pokum og baka í sílíkon-muffinsformum. Það sem kom langbest út var að baka kátrið í brauðformi eða álformi og loka að ofan með bökunarpappír. Þá myndast stór hleifur sem hægt er að skera niður í sneiðar eins og sjá má á myndunum.

Mér finnst kátur best með kartöflum og uppstúf en lifrarpylsan bragðast einnig vel með grjónagraut. Búið er að prófa uppskriftina á fjölbreyttum markhópi (allt frá unglingsdrengjum og óléttum stúlkum yfir í briddsklúbbinn hans pabba) og vekur hún mikla lukku í hvert sinn.

Verði ykkur að góðu!

Prenta uppskrift

Hráefni:

Blóðmör:

  • 1 stk rauðrófa, (300-400 g)
  • 100 g spínat
  • 2 msk Floradix járnformúla, má sleppa
  • 1 dós svartar baunir
  • 1 dl vatn
  • 1/2 blómkálshöfuð
  • 1 dl kókosolía, (bragð- og lyktarlaus)
  • 1,5-2 dl haframjöl
  • 5-6 dl rúgmjöl
  • 3 tsk salt
  • pipar

Lifrarpylsa

  • 1 dós kjúklingabaunir, vökvinn geymdur
  • 1 dós svartbaunir
  • 400 g frosin sveppablanda, eða 100g þurrkaðir villisveppir
  • 1 dl vökvinn af kjúklingabaununum
  • 2 dl vökvinn af sveppunum, eða sojamjólk
  • 2-3 dl sojamjólk, alls 5-6 dl alls af vökva
  • 1/2 blómkálshöfuð
  • 200 g kókosolía, (bragð- og lyktarlaus)
  • 100 g haframjöl
  • 100 g rúgmjöl
  • 100 g bankabygg, óeldað
  • 100 g heilhveiti
  • 3 tsk salt
  • pipar

Aðferð:

Blóðmör:

  • Rauðrófan rifin og maukuð í matvinnsluvél. Spínati bætt við og maukað með rauðrófunni. Þetta myndar “blóðið” ásamt floradix járnformúlunni.

  • Maukið svartbaunirnar og kókosolíuna í matvinnsluvél og blandið saman við rauðrófu- og spínatblönduna.

  • Blandið þurrefnunum saman við rauðrófublönduna með sleif þannig að úr verði þykkur grautur.

  • Blómkálið er skorið smátt og því hrært saman við með sleif.

  • Ef deigið er of þunnt má bæta við smá rúgmjöli eða blanda meira vatni saman við ef það er of þykkt

Lifrarpylsa:

  • Látið frosnu sveppina þiðna og sigtið síðan vökvann frá og geymið. Ef notaðir eru þurrkaðir sveppir er notuð sojamjólk í stað sveppavökvans.

  • Vökvinn er sigtaður frá kjúklingabaununum og settur til hliðar og geymdur.

  • Baunir, sveppir og kókosolía er sett í matvinnsluvél og blandað þar til úr verður þykkt mauk.

  • Vökvanum er bætt út í blönduna með sleif, alls 5-6 dl.

  • Blandið því næst þurrefnunum saman við.

  • Blómkálið er skorið smátt og því hrært saman við með sleif.

  • Ef deigið er of þunnt má bæta við smá rúgmjöli eða blanda meira vatni saman við ef það er of þykkt

Eldun og framreiðsla:

  • Setjið deigið í eins lítra álform sem er smurt með olíu (eða brauðform þakið bökunarpappír). Þrýstið smjörpappír ofan á svo deigið sé alveg hulið.

  • Bakið í ofni á blæstri við ca. 110-120°C í um 2,5-3 klst eftir því hversu stór formin eru.

  • Takið keppina úr ofninum og látið kólna alveg til að þeir stífni. Þetta skref er mikilvægt því keppirnir halda síðan stífleikanum seinna meir þegar þeir eru hitaðir upp.

  • Geymið í ísskáp eða frysti.

  • Til að bera fram kátrið er það hitað upp í ofni eða stutta stund í örbylgjuofni.

  • Borðað heitt með kartöflum og jafningi en einnig hægt að borða kalt með grjónagraut.

2 Comments

  • Atli

    03/30/2020 at 1:55 pm

    Uppskriftin dugar í mun meira en eins lítra form, er þetta tvöföld uppskrift?

    1. Grænkerar

      05/12/2020 at 10:06 am

      Við höfum bakað það í ýmsum formum: stóru brauðformi, smærri álformum og svo sílíkon-möffinsformum.
      Uppskriftin er nokkuð stór, jú 🙂

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift