Site Logo
  • Heim
  • Uppskriftir
    • Jól
    • Matur
    • Snarl og smáréttir
    • Brauð og bakstur
    • Kökur og sætindi
    • Morgunmatur
    • Glúteinlaust
    • Drykkir
  • Greinar
  • Um mig
  • Hafa samband
  • Leita

AÐ GERAST GRÆNKERI

Vegan eða grænkeri er hugtak sem er notað yfir þá sem kjósa sér lífstíl án dýraafurða. Hér eru 7 atriði sem gott er að hafa í huga fyrir grænkera og þá sem hafa áhuga á að gerast grænkerar.

SALTKARAMELLU NICECREAM

Þessi saltkaramellu nicecream með hnetusmjöri er einhver sá allra besti sem ég hef gert. Uppistaðan í ísnum eru frosnir bananar en einnig nota ég kókosmjólk í dós, ferskar döðlur, hnetusmjör og salt.

Indverskt dal

Vinsælasta uppskrift síðunnar og jafnframt einn uppáhalds rétturinn minn. Indverskt dal er hollt og bragðgott en á sama tíma gríðarlega einfalt og krefst lítillar vinnu.

HAUSTLEGT BANANABRAUÐ

Sykurlaust bananabrauð sem er fullkomið fyrir haustið. Þetta bananabrauð er uppáhalds helgarbakstur fjölskyldunnar en stúfunum mínum finnst svo gaman að taka þátt í bakstrinum.

EINFALDUR POTTRÉTTUR

Saðsamur og bragðgóður pottréttur. Uppskriftin er einföld en innihaldið bráðhollt. Saman myndar þetta mjúkan pottrétt með rjómakenndri kókos-tómatsósu.

GLÚTENLAUS SÚKKULAÐIKAKA

Undursamlega góð glútenlaus súkkulaðikaka með saltkaramellukremi sem bráðnar í munninum.

  • Sterk grillsamloka með avókadó

    Ég kynni nýju uppáhaldsgrillsamlokuna þína: súrdeigsbrauð, spicy mæjó, þroskað avókadó, ferskir tómatar og rifinn, sterkur vegan ostur frá Ellu Stínu,…

    LESA MEIRA
  • Falafel bakki

    Fyrir nokkrum árum fór ég á veitingastað í Búdapest þar sem ég smakkaði í fyrsta sinn Baba Ganoush og Muhammara…

    LESA MEIRA
  • Súkkulaðismoothie

    Súkkulaði-hnetusmjörs smoothie

    Silkimjúkur smoothie með súkkulaðibragði – þessi smoothie nærir bæði líkama og sál. Fullkominn fyrir morguninn, sem millimál, eftir æfingu eða…

    LESA MEIRA
  • Ofnbakaðar paprikur með quinoafyllingu

    Þessi réttur er ekki einungis skemmtilegur útlitslega (fullkominn fyrir næsta matarboð) heldur er bragðið, ótrúlegt en satt, betra en útlitið…

    LESA MEIRA
  • Bláberjapæ með hnetubotni

    Ég ákvað að láta loksins verða af því að birta eina af mínum uppáhalds kökuuppskriftum en jafnframt þá allra hollustu.…

    LESA MEIRA
  • Chili sin carne

    Fullkomin uppskrift fyrir kaldari mánuði ársins. Þennan pottrétt er ótrúlega einfalt að útbúa og bragðið er dásamlegt. Ég var ekki…

    LESA MEIRA
  • Poke skál með vegan teriyaki kjúkling

    Poke skál er eins konar ósamsett sushi. Í stað þess að rúlla hráefnunum upp í lengju og skera í bita…

    LESA MEIRA
  • Haustlegt bananabrauð (sem er sykurlaust)

    Þetta bananabrauð er uppáhalds helgarbakstur fjölskyldunnar en stúfunum mínum finnst svo gaman að taka þátt í bakstrinum. Mér finnst mikilvægt…

    LESA MEIRA
  • Pastarétturinn sem allir elska

    Ég kynntist þessum pastarétti upprunalega hjá systur minni sem eldaði dásamlega bragðgóðan og ofureinfaldan pastarétt þar sem sósan samanstóð fyrst…

    LESA MEIRA
  • Kókos-karrý núðluréttur

    Seinustu helgi fór ég á bændamarkað Krónunnar og var virkilega glöð að sjá nýupptekið, umbúðalaust blaðkál (e. bok choy/pak choi)…

    LESA MEIRA
  • Fullkomin sveppasúpa með timian

    Ég held ég geti með sanni sagt að þessi sveppasúpa sé uppáhalds matur mannsins míns. Hvort sem hún er í…

    LESA MEIRA
  • Lime og kóríander hrásalat fyrir grillveisluna

    Veðrið seinustu daga hefur fengið mig til að trúa því að sumarið sé loksins að láta sjá sig. Þá er…

    LESA MEIRA

Fylgdu mér á Instagram

Samloka með súrdeigsbrauði, heimagerðu pestói, kle Samloka með súrdeigsbrauði, heimagerðu pestói, klettasalati, gúrku, tómat og vegan kjúklingaáleggi. Fullkomið í hádeginu😋🌱

Notaði vegan kjúklingaáleggið frá Ellu Stínu sem ég get heilshugar mælt með! Það stenst allar væntingar og meira til🙌🏻
Gerði þennan dásamlega eftirréttabakka með ferskum Gerði þennan dásamlega eftirréttabakka með ferskum berjum, vegan súkkulaðinu frá @ellastina__ , döðlum með saltlakkrís og hnetum. Sló í gegn🍓🫐🍫
Auðveldur jarðarberja-vanillu prótíndrykkur🍓🥛 Inn Auðveldur jarðarberja-vanillu prótíndrykkur🍓🥛

Inniheldur:

Vegan hafrajógúrt (nota frá Örnu)
Möndlumjólk
Banana
Frosin jarðarber
Döðlur
Möndlusmjör (ekki gleyma hollu fitunni, krakkar)
Vanilluprótín frá @tropic.is 

Allt í blandara og málið dautt! 
Mæli innilega með þessum💕

Unnið í samstarfi við @tropic.is
Það besta við haustið, að mínu mati, er rútínan. Á Það besta við haustið, að mínu mati, er rútínan. Á haustin borða ég frekar reglulega og hollt heldur en á sumrin.
Hér er hugmynd að prótínríkri bláberja-acai skál - fullkomin uppskrift fyrir bláberjatíðina🫐

Uppskrift (2 skálar):
1 banani
1 dl vegan jógúrt
2-3 dl bláber
2 dl frosið avókadó
1 skeið vanilluprótín
1 msk. acai duft
3-4 döðlur
1 msk. möndlusmjör
1 dl möndlumjólk
1 dl af trönuberjasafa (eða eplasafa)

Blandið í matvinnsluvél eða blandara og hellið í skálar.
Toppið með skornum banana, berjum, möndlusmjöri og sykurlausu granóla.
Sveppa- svartbaunaborgarar🍄‍🟫 Hráefni: 1 pakki sv Sveppa- svartbaunaborgarar🍄‍🟫

Hráefni:
1 pakki sveppa- og svartbaunabuff Ellu Stínu (4 buff)
4 gróf hamborgarabrauð
Tómatsósa
Vegan ostsneiðar (t.d. Violife original)
Klettasalat
2 portobellosveppir
1-2 msk. Tamari sósa
1/2 krukka súrar gúrkur
Sultaður rauðlaukur (uppskrift að neðan)

Sultaður rauðlaukur:
2 rauðlaukar
1 msk. Avókadóolía
½ dl balsamik edik
1-2 hvítlauksrif
½  dl. hlynsýróp
1 tsk. salt
Nýmalaður svartur pipar

Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar. Setjið laukinn í pott ásamt restinni af hráefnunum og hitið að suðu og hrærið í á meðan. Látið malla við lágan hita í um hálftíma eða þar til rauðlaukurinn er mjúkur og líkist sultu.

Samsetning:
Skerið portobello sveppina í þunnar sneiðar og steikið á pönnu upp úr olíu. Hellið tamari sósu yfir ásamt salti og pipar og steikið þar til sveppirnir hafa mýkst. Grillið eða steikið sveppa- og svartbaunabuffin og kryddið með salti og pipar. Setjið ostinn ofan á og haldið lokinu á pönnunni/grillinu svo osturinn bráðni betur. Grillið eða hitið hamborgarabrauðin svo þau haldist þó mjúk að innan.
Setjið nú hamborgarana saman með tómatsósu, klettasalati, súrum gúrkum, portobellosveppum, sveppa-svartbaunabuffi og sultuðum rauðlauk🍔

Verði ykkur að góðu!
Þessi uppskrift kemur svo innilega á óvart og eru Þessi uppskrift kemur svo innilega á óvart og eru þessar ofnbökuðu paprikur með quinoafyllingu orðnar einn af reglubundnum réttum heimilisins🫑

Ég held að lykillinn við bragðið felist í tveimur atriðum. Annars vegar er quinoað soðið með grænmetistening sem gefur því betra bragð. Hins vegar inniheldur fyllingin ekki aðeins quinoa heldur einnig vegan hakk, gular baunir og svartbaunir. Hún er því ótrúlega bragðmikil og mettandi.

Kínóa er verulega prótínríkt en það inniheldur 12-18% prótín og allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar – það flokkast því sem fullkomið prótín. Kínóa hentar einnnig vel þeim sem eru með glúteinóþol því það er glúteinlaust.

Uppskriftin er á graenkerar.is🌱
Í vikubyrjun undirbý ég prótínríka grautarblöndu s Í vikubyrjun undirbý ég prótínríka grautarblöndu sem ég er með í vinnunni og græja morgunmatinn þar. Hér er uppskriftin að grautnum sem ég borða flestalla morgna (nægir í 3-4 skálar):

2 dl haframjöl
1 dl chia fræ
1/2-1 skeið gott prótínduft (ég nota vanillu-karamelluprótínið frá RawNice)
2 msk. Plant Collagen frá Your super
1-2 tsk. kanill
2 tsk. salt

Öllu hrært saman í krukku. Til að blanda graut set ég um 1/2 dl af þurrblöndu saman við 1,5-2 dl vatn og hita í 2-3 mín í örbylgjuofni. Gott að hræra á milli.

Gott að toppa með banana, berjum/epli, hnetum/möndlusmjöri og plöntumjólk.
Bláberjapæ með hnetubotni🫐 Þessi uppskrift er í a Bláberjapæ með hnetubotni🫐

Þessi uppskrift er í algjöru uppáhaldi hjá mér og börnunum og tími kominn til að deila henni með ykkur! Uppskriftin er á Graenkerar.is

Það er akkúrat vika til stefnu í konudaginn svo ég birti þessa uppskrift vel tímanlega svo hægt sé að baka þessar dásemdarpæjur fyrir konurnar í lífi ykkar🤍

Fyllingin er dásamlega mjúk og passar fullkomlega með stökkum botninum. Ég notaði ofurduftin Plant Collagen og Forever Beautiful frá Your Super (fást hjá @tropic.is) en ég á þau alltaf til og fannst svo tilvalið að bæta þeim í fyllinguna. Það má þó alveg sleppa þeim eða skipta út fyrir t.d. Acai duft og Lucuma.

Unnið með gefins vörum frá Tropic.is
Uppskrift að chili sin carne var að lenda!🌶️ Ég v Uppskrift að chili sin carne var að lenda!🌶️

Ég var ekki alveg viss um hvort ég ætti að kalla réttinn Chili sin carne eða Chili con carne vegna þess að notast er við vegan hakk. Þannig er uppskriftin vissulega kjötlaus en bragðast þó eins og Chili con carne.

Fullkomið fyrir kalda vetrardaga❄️

Unnið í samstarfi við @ellastina_vegan
Fylgja á Instagram

Um mig

About Me

Ég heiti Þórdís Ólöf og hef verið grænkeri síðan 2016. Ég hef brennandi áhuga á matargerð, næringu og heilsu og finnst mér fátt skemmtilegra en að elda og borða góðan mat. Með þessari síðu vil ég sýna fólki hvað það er auðvelt og skemmtilegt að elda vegan mat og að grænkerar geti vel verið sælkerar.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinterest

Að gerast grænkeri

Promo Item
  • Facebook
  • Instagram
  • Pinterest

© Grænkerar 2018