Glútenlaus súkkulaðikaka með saltkaramellukremi

Glútenlaus bakstur… hvar á ég að byrja? Frá því að mamma greindist með glútenóþol fyrir mörgum árum síðan hef ég átt í ástar- hatursambandi við glútenlausan bakstur. Ég hef ótrúlega gaman af áskorunum í matargerð og er alltaf full bjartsýni þegar ég dreg fram glútenlausa mjölið. Þegar afurðin fer í ofninn renna hins vegar á mig tvær grímur og þegar ég smakka afurðina þá man ég af hverju bakstur er almennt með glúteni. Það er einfaldlega ekki einfalt að gera hefðbundinn bakstur glútenlausan.

Ég hef sannarlega leitað logandi ljósi að leiðum til að geta gert hefðbundnar uppskriftir nema glútenlausar og oft tekist frábærlega til, svo sem með þessum glútenlausu vöfflum og kryddbrauði. Einhvern veginn hef ég þó aldrei náð að gera almennilega, klassíska súkkulaðiköku sem er glútenlaus. Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hversu oft ég og mamma höfum ákveðið að í dag sé dagurinn þar sem okkur mun loksins takast ætlunarverkið og mamma getur fengið súkkulaðikökuna sem hún á skilið (enda eiga góðar mömmur alltaf skilið súkkulaðikökur) en lokaafurðin er ýmist þurr og mjölkennd, seig eins og skósóli, vond á bragðið eða einhvern vegin allt á sama tíma. Þið megið reyndar taka þessum orðum mínum með smá fyrirvara því ég var orðin mjög bitur út í glútenlausan bakstur og er kannski örlítið dramatísk. Án allra ýkja þá var þetta þó aldrei sérlega vel heppnað – þar til núna!

 

Fyrir nokkrum mánuðum tókst mér að gera undursamlega góða glútenlausa súkkulaðiköku og hef núna gert hana margoft og útfært sem bollakökur, skúffuköku eða þriggja hæða hnallþóru. Sem betur fer skráði ég uppskriftina niður og heppnast kakan því í hvert einasta sinn. Elsku besta mamma mín getur loksins fengið súkkulaðiköku! Ef þið eruð sjálf með glútenóþol eða þekki einhvern slíkan sem á skilið súkkulaðiköku þá megið þið eiginlega ekki láta þessa uppskrift fara fram hjá ykkur.

Ég verð að viðurkenna að uppskriftin sjálf var hálf tilraunakennd og ég veit ekki hvað það er nákvæmlega sem gerir kökuna svona góða svo ég verð að ráðleggja ykkur að fylgja uppskriftinni mjög vel. Mig grunar að lykillinn felist í kasjúhnetumaukinu (kasjúhnetur og vatn í blandara) sem gerir kökuna raka og djúsí ásamt duftinu xanthan gum sem bindur glútenlausa mjölið saman. Slíkt er auðvitað mjög mikilvægt þar sem glútenlaust mjöl inniheldur (augljóslega) ekki glúten en það er í raun “límið” sem bindur hveiti saman.

Uppskriftin er mjög stór, enda nægir hún í þriggja hæða köku, og passar líka í skúffu ef þið viljið frekar útfæra hana sem skúffuköku. Vel mætti líka sjá fyrir sér að helminga hana og setja í stórt hringform til að gera köku á einni hæð. Með kökuupskriftinni fylgir svo uppskrift að vegan saltkaramellukremi sem er allra besta krem sem ég hef smakkað!

Verði ykkur að góðu!

Prenta uppskrift

Hráefni:

Botnar (nægir í 3 litla botna, 2 stóra eða ofnskúffu):

  • 4 dl kasjúhnetur
  • 4 dl vatn
  • 1/2 dl eplaedik
  • 4 dl plöntumjólk
  • 4 dl glútenlaust hveiti
  • 2 tsk. xanthum gum
  • 2 dl sykur, ég nota hrásykur eða kókospálmasykur
  • 3 dl kakóduft
  • 1,5 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • 1,5 dl bragðlaus olía
  • 1/2 dl espressó
  • 1 msk. vanilludropar
  • 1/2 tsk. salt

Saltkaramella:

  • 400 ml feit kókosmjólk í dós eða vegan rjómi
  • 2 dl sykur, ég nota hrásykur eða kókospálmasykur
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 1 tsk. salt

Saltkaramellukrem:

  • 400 g vegan smjör
  • 800 g flórsykur
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 2 dl saltkaramella við stofuhita, eða eftir smekk

Aðferð:

Botnar:

  • Kveikið á ofninum og stillið á 175°, yfir- og undirhita.

  • Skolið kasjúhneturnar vel og leggið í bleyti í 10-20 mín.

  • Sigtið vatnið frá kasjúhnetunum og setjið þær í blandara ásamt 4 dl af köldu vatni. Hrærið eplaedikinu saman við með sleif og leyfið blöndunni að bíða.

  • Hrærið nú saman þurrefnunum í stórri skál.

  • Blandið kasjúhnetublöndunni, plöntumjólk, espressó, olíu og vanilludropum saman og hellið út á þurrefnablönduna í skömmtum og hrærið.

  • Smyrjið kökuform með olíu og leggið smjörpappír í botninn. Dreifið deiginu jafnt á milli formanna (ég notaði 3 kökuform og setti um 530g af deigi í hvert form).

  • Bakið í 25-30 mín (fer þó eftir stærð forma sem er notuð). Gott er að nota grillpinna til að stinga í kökuna eftir 25 mínútur til að athuga hvort hún sé bökuð í gegn.

Saltkaramella:

  • Setjið rjóma/kókosmjólk og sykur í pott eða pönnu og hitið að suðu. Látið karamelluna sjóða í um 15-20 mín og hrærið reglulega í þar til hún hefur þykknað og er ljós-gullinbrún. Athugið að ef þið notið kókospálmasykur verður hún dekkri á litinn.

  • Bætið salti og vanilludropum saman við og leyfið karamellunni að kólna við stofuhita.

Saltkaramellukrem:

  • Þeytið vegan smjör í hrærivél þar til létt og ljóst.

  • Bætið flórsykrinum saman við og því næst saltkaramellunni og vanilludropum.

Samsetning::

  • Þegar kökubotnarnir eru bakaðir er best að leyfa þeim að kólna við stofuhita.

  • Leggið einn kökubotn á kökudisk og smyrjið 1/3 af kreminu á hann. Bætið næsta botni ofan á og 1/3 af kreminu. Leggið því næst seinasta botninn ofan á og skerið ofan af grillpinna og stingið í gegnum kökuna í miðjunni svo kakan fari ekki að halla. Bætið restinni af kreminu ofan á kökuna og notið spaða til að slétta hliðarnar.

1 Comments

  • Ása

    08/24/2023 at 5:41 pm

    Sæl,

    Ekki búin að prófa, en mikið er kaan falleg 🙂

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift