Svartbaunabrúnkur

Þessa uppskrift hef ég haft í miklu uppáhaldi í þó nokkur ár en var aldrei búin að skrifa niður nákvæma uppskrift fyrr en nú. Einhverjum þykir kannski undarlegt að nota svartbaunir í kökubakstur en ég get fullyrt að það mun enginn finna neitt svartbaunabragð heldur gefa þær kökunum dásamlega mýkt og bæta næringarinnihald þeirra auðvitað verulega. Segja má að þetta séu svona kökur sem má borða í kaffitímanum án þess að fá sér eitthvað hollt fyrst (voru ekki annars allir látnir byrja að borða eitthvað hollt áður en sætindin voru dregin fram?)

Uppskriftin er ansi einföld en hráefnunum er einfaldlega skellt í matvinnsluvél og svo er kakan bökuð í 15 mínútur. Ég veit allavega fátt þægilegra til að baka þegar ég á von á gestum og hef lítinn tíma.

Brúnkurnar innihalda ekki hvítt hveiti heldur nota ég hafrahveiti sem ég útbý með því að setja haframjöl (glútenlaust ef vill) í blandara. Ég blanda haframjölið þar til fíngert hveiti hefur myndast. Hafrahveiti er að mínu mati mjög vanmetið en ég nota það í langflestan bakstur, hvort sem ég ætla að gera glútenlaust eða ekki, þar sem það er bragðgott, bindur deigið vel saman og er auðvitað miklu hollara en hvítt hveiti.

Kökurnar eru dásamlegar volgar úr ofninum með glasi af ískaldri plöntumjólk en mér finnst þær einnig góðar þegar þær hafa kólnað og tek þær hiklaust með mér í nesti daginn eftir. Fyrir ykkur sem stundið útivist eru kökur sem innihalda meðal annars svartbaunir, haframjöl og möndlusmjör auðvitað frábærar sem bragðgóður orkubiti í fjallgönguna.

Verði ykkur að góðu!

Prenta uppskrift

Hráefni:

  • 2 dl hafrahveiti, haframjöl sett í blandara
  • 1 dós svartbaunir
  • 1/2 dl möndlusmjör
  • 1 dl kókosolía, bragð- og lyktarlaus
  • 3/4 dl kakóduft
  • 1 dl kókospálmasykur, eða meira eftir smekk
  • 1,5 dl plöntumjólk
  • 1 tsk. vínsteinslyftiduft
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 1/2 tsk. salt
  • 1 msk. eplaedik, hjálpar að lyfta kökunni
  • 200 g suðusúkkulaði

Aðferð:

  • Kveikið á ofninum og stillið á 180 gráður og blástur.

  • Byrjið á því að útbúa hafrahveitið ef þið eigið ekki til. Setjið haframjöl (glútenlaust ef vill) í blandara og malið þar til fíngert hveiti hefur myndast.

  • Setjið svartbaunirnar í sigti og skolið þær.

  • Setjið nú öll hráefnin nema súkkulaðið í matvinnsluvél og blandið þar til þau hafa samlagast.

  • Saxið súkkulaðið loks gróft niður og hrærið því saman við deigið.

  • Smyrjið ofnfast mót (ég notaði 28 x 18 cm) með olíu eða vegan smjöri og hellið deiginu út í.

  • Bakið í 15-18 mínútur. Kakan á að vera mjúk þegar hún kemur úr ofninum en hún stífnar þegar hún kólnar.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift