Bökuð sæt kartafla með mexíkóskri fyllingu

Í nokkurn tíma hef ég verið að vinna mig meira í áttina að því sem kallast plöntu- og heilfæði , eða whole food plant based, þar sem er lögð áhersla á lítið unna matvöru. Ég er aðeins of hrifin af vegan kjöti (sérstaklega vegan hakki) og eins frábært og það er að hafa slíka valkosti er auðvitað miklu hollara að temja sér að nota minna unna matvöru, svo sem baunir, tófú eða grænmeti. Mig langaði að útbúa sæta kartöflu með mexíkóskri fyllingu og ákvað að í stað þess að reiða mig á vegan hakk, tilbúna kryddblöndu og salsa sósu í krukku að notast við lítið eða óunninn mat. Uppskriftin inniheldur því eingöngu grænmeti, baunir og kryddjurtir, ólífuolíu og salt auk þess sem heimagerði sýrði rjóminn er með vegan sojajógúrt (sem er mest unna matvaran í þessari máltíð).

Þrátt fyrir að hafa verið vegan í rúmlega 6 ár þá kom það mér á óvart hvað það er hægt að fá dásamlegt bragð með því að notast eingöngu við óunna hrávöru. Með því að blanda saman baunum, grænmeti, þrenns konar lauk, fersku kóríander, lime safa, ólífuolíu og salti verður úr fersk og dásamlega bragðgóð fylling sem myndar mótvægi við mjúka sætu kartöfluna en er ekki síðra eintómt. Avókadó er auðvitað algjör staðalbúnaður í mexíkóskri matargerð en ég valdi fyrir þennan rétt að hafa þetta einfalt og stappa það ásamt lime safa og salti. Vel má gera klassískt lárperumauk (guacamole) en þar sem fyllingin inniheldur flest sömu hráefnin og eru sett út í slíkt þá fannst mér því ofaukið. Heimagerði sýrði rjóminn kemur síðan verulega skemmtilega á óvart og ég mæli með að gera nóg af honum.

Rétturinn er í raun ósköp einfaldur í framkvæmd því að á meðan kartöflurnar bakast er fyllingin, lárperumaukið og sýrði rjóminn útbúinn. Þegar kartöflurnar eru bakaðar í gegn eru þær einfaldlega skornar, settar á disk og fyllingunni raðað í. Ég mæli með að hafa eina sæta kartöflu á mann en velja þó kartöflur í smærri kantinum þar sem rétturinn er matarmikill.

Verði ykkur að góðu!

Prenta uppskrift

Hráefni (fyrir 4):

Bakaðar sætar kartöflur:

  • 4 sætar kartöflur, í smærri kantinum

Fylling:

  • 2 dósir svartbaunir
  • 2 dl gulur maís
  • 3 tómatar
  • 1 paprika
  • 1 rauðlaukur
  • 2-3 vorlaukar
  • 3 hvítlauksrif
  • 1/2-1 ferskur grænn chili, fræhreinsaður
  • 1 lime, safinn kreistur úr
  • 1/2 dl ólífuolía
  • handfylli ferskt kóríander
  • 1 tsk. flögusalt

Lárperumauk:

  • 1 avókadó
  • 1/2 lime, safinn kreistur úr
  • flögusalt

Sýrður rjómi:

  • 2 dl þykk vegan jógúrt, t.d. Soyade greek style
  • 1 lime, safinn kreistur úr
  • flögusalt

Aðferð:

Bakaðar sætar kartöflur:

  • Kveikið á ofninum og stillið á 180° blástur.

  • Notið gaffal til að stinga göt á hýðið á sætu kartöflunum (svo þær springi ekki í ofninum). Bakið þær í klukkutíma eða þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn.

Fylling:

  • Skolið svartbaunirnar og gulu baunirnar og setjið í stóra skál.

  • Skerið grænmetið og laukinn smátt og bætið út í skálina. Pressið hvítlauk og fræhreinsið og saxið grænt chili og ferskt kóríander smátt og blandið saman við.

  • Kreistið loks lime yfir blönduna, hellið ólífuolíu og myljið flögusalt yfir. Blandið saman og geymið í kæli þar til kartöflurnar eru tilbúnar.

Lárperumauk:

  • Stappið avókadóin og blandið nýkreistum lime safa og muldu flögusalti saman við.

Sýrður rjómi:

  • Blandið saman vegan jógúrt, nýkreistum lime safa og muldu flögusalti.

Samsetning:

  • Takið sætu kartöflurnar úr ofninum þegar þær hafa bakast í gegn. Skerið eftir þeim endilangt svo myndist rauf.

  • Opnið kartöflurnar í sundur og maukið innihaldið. Gott getur verið að fjarlægja örlítið af innihaldi kartaflanna til að hafa meira pláss fyrir fyllingu. Innihaldið má svo nota í súpu eða pottrétt daginn eftir.

  • Setjið bauna- og grænmetisblönduna inn í kartöflurnar. Setjið lárperumaukið ofan á og toppið loks með heimagerða sýrða rjómanum.

  • Gott er að bera kartöflurnar fram með fersku kóríander og lime.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift