Falafel bakki

Fyrir nokkrum árum fór ég á veitingastað í Búdapest þar sem ég smakkaði í fyrsta sinn Baba Ganoush og Muhammara ídýfu. Ég féll strax fyrir þessum réttum og eftir að ég kom til baka hef ég gert ýmsar tilraunir. Í grunninn er baba ganoush mjög líkt hummus en í stað kjúklingabauna er bakað eggaldin. Lykillinn við Baba Ganoush er hins vegar að ná safanum úr eggaldininu svo ídýfan verði ekki vökvakennd heldur þétt í sér. Ég er að sjálfsögðu forfallinn hummus aðdáandi og finnst fátt betra en að útbúa þessar þrjár uppáhalds ídýfur og bera fram sem falafel bakka.

Falafel bakki er litríkur, bragðmikill og næringarríkur réttur sem á rætur að rekja til Mið-Austurlanda. Hann sameinar klassísk hráefni svæðisins í fallega heild – stökkar, kryddaðar falafelbollur bornar fram með úrvali af dásamlegum ídýfum og meðlæti: hummus, baba ganoush, muhammara, jógúrtsósu og tahini-sósu. Með þessu fylgja oft ólífur, grænmeti og pítabrauð sem gerir réttinn bæði saðsaman og fjölbreyttan. Mér finnst æðislegt að gefa mér tíma í að gera mitt eigið falafel en eftir að hafa smakkað Wauw! falafelið hef ég ákveðið að einfalda mér sporin því þarna hef ég loksins fundið falafel sem ég er ánægð með. Bollurnar eru ótrúlega bragðgóðar og við bakstur í ofni verða þær stökkar að utan en dásamlega mjúkar að innan.



Falafel bakki er fullkominn fyrir þá sem vilja plöntumiðaðan, hollan og bragðmikinn rétt sem hentar jafnt sem létt máltíð, partýréttur eða kvöldverður með fjölskyldunni. Hann sameinar mýkt, stökkleika og hlýleg krydd í einni skál – sannkallað veisluævintýri fyrir bragðlaukana.

Um ídýfurnar: hummus, baba ganoush og muhammara

Hummus á sér langa sögu en hann er upprunninn í Mið-Austurlöndum og er ýmist notaður sem ídýfa eða smurálegg. Uppistaðan í hummus eru kjúklingabaunir en við þær er blandað tahini (sesamsmjör), hvítlauk, sítrónusafa, salti og ólífuolíu. Hummus er próteinríkur, trefjaríkur og stúfullur af vítamínum og steinefnum (t.d. B-vítamíni og járni).

Baba Ganoush á rætur sínar að rekja til Mið-Austurlanda og er vinsæl ídýfa eða meðlæti sem minnir á hummus, en er gerð úr grilluðum eða bökuðum eggaldinum. Eggaldinið fær djúpan, reyktan keim og þegar það blandast saman við tahini (sesamsmjör), hvítlauk, sítrónusafa, ólífuolíu og krydd verður niðurstaðan ómótstæðileg. Silkimjúk, bragðmikil og holl ídýfa sem passar vel með brauði, hrámeti eða sem meðlæti með grillmat. Baba Ganoush er trefjaríkt, tiltölulega lágt í hitaeiningum og inniheldur góð fituefni, andoxunarefni og vítamín eins og C- og K-vítamín.

Muhammara er upprunnin í Sýrlandi, nánar tiltekið í borginni Aleppo, og er dásamlega bragðmikil rauð paprikuídýfa. Hún er gerð úr ristuðum rauðum paprikum, valhnetum, hvítlauk, sítrónusafa, granateplasírópi og kryddum eins og kúmeni. Blandan gefur djúpan, sætan, örlítið reyndan og léttkryddaðan keim sem gerir Muhammara að einstöku meðlæti eða brauðáleggi. Muhammara er ríkt af hollri fitu, próteinum og andoxunarefnum og inniheldur meðal annars E-vítamín og Omega-3 fitusýrur úr valhnetunum.

Mér finnst frábært að bæta við að minnsta kosti einni léttri sósu, til dæmis jógúrtsósu eða tahini sósu.
Jógúrstósuna er auðvelt að gera úr vegan hráefnum en uppskrift að henni má finna hér.
Tahini sósan er ekki síður einföld en uppistaðan er hvítt tahini, hvítlaukur og sítrónusafi. Uppskriftin að henni er hér.

Stökkum falafel bollum dýft í jógúrtsósu

Notkunarmöguleikar fyrir falafel bakkann

Þessi bakki er stútfullur af dásamlegum mat sem nægir fyrir 8-10 manns. Fullkominn veislu- eða partýmatur en ekki síðra fyrir föstudagskvöld með fjölskyldunni því afgangarnireru ekki síðri næstu daga. Ef eitthvað verður eftir af falafel bakkanum má geyma í ísskáp og njóta daginn eftir. Falafelbollurnar má hita upp í ofni og ídýfurnar eru frábærar sem smurálegg eða með hráu grænmeti. Réttina á þessum bakka má svo einnig nota sem uppistöðu í salatskál, pítur eða vefjur. Algjör snilld til að nýta afgangana með annarskonar hætti.


Verði ykkur að góðu!

– Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ellu Stínu

Prenta uppskrift

Hráefni:

Hummus:

  • 1 dós kjúklingabaunir, ásamt ca. fjórðungi af safanum
  • 1 msk. tahini
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 1-2 hvítlauksrif, pressuð
  • Handfylli fersk steinselja
  • 3 msk. ólífuolía
  • 1/2 tsk. cumin
  • 1/4 tsk. paprikukrydd
  • salt, eftir smekk
  • cayanne pipar, eftir smekk

Baba ganoush:

  • 2 stór eggaldin
  • 2 msk. ljóst tahini
  • 1 stk. sítróna, safinn kreistur úr
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • handfylli fersk steinselja
  • 1/2 tsk. cumin
  • 2-3 msk. ólífuolía
  • salt, eftir smekk
  • cayanne pipar, eftir smekk
  • fræ úr granatepli til skrauts, má sleppa

Muhammara:

  • 3 rauðar paprikur
  • 50 gr valhnetur
  • 1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 2 tsk. granateplasýróp, eða handfylli af fræjum úr granatepli
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1/2 tsk. cumin
  • 1/2 tsk. cayanne pipar
  • salt og pipar, eftir smekk

Raita (jógúrtsósa):

  • 1 dl vegan jógúrt, t.d. sykurlaus sojajógúrt
  • 1 dl Oatly sýrður rjómi
  • 1/4 gúrka, rifin smátt
  • 1/2-1 hvítlauksrif, pressað
  • 2 tsk. sítrónusafi
  • salt og pipar, eftir smekk

Tahini sósa:

  • 1 dl ljóst tahini
  • 1/2-1 dl kalt vatn
  • 1 hvítlauksrif, pressað
  • 4 msk. sítrónusafi
  • 1 tsk. hlynsýróp
  • 1/2 tsk. salt

Falafel bakki (samsetning):

  • 1 skál Hummus
  • 1 skál Baba ganoush
  • 1 skál Muhammara ídýfa
  • 1 skál Tahini sósa
  • 1 skál Jógúrtsósa
  • 1 pakki Wauw! falafel, Original
  • 1 pakki Wauw! falafel, Gulróta og engifer
  • 1 pakki Pítubrauð, frá Ellu Stínu
  • 1 box kirsuberjatómatar
  • 1 gúrka
  • 1 paprika
  • 1 dós grænar ólífur með steini

Aðferð:

Hummus:

  • Setjið sítrónusafa, tahini og kjúklingabaunir (ásamt fjórðungi af safanum) í matvinnsluvél og blandið þar til silkimjúkt.

  • Bætið því næst hinum hráefnunum út í fyrir utan ólífuolíuna. Blandið saman í nokkrar sek. Þegar áferðin er orðin silkimjúk er 2 msk. Af ólífuolíunni bætt út í og blandað á meðan. Smakkið til og bætið við sítrónusafa, tahini, cumin eða salti eftir smekk.

  • Setjið hummusinn í skál og hellið afgangnum af ólífuolíunni yfir. Svo má strá smá cayenne eða chilipipar yfir.

Baba ganoush:

  • Kveikið á ofninum og stillið á um 180°C. Skerið eggaldin langsum og penslið að innan með ólífuolíu. Setjið bökunarpappír á ofngrindina og leggið eggaldinhelmingana á hvolf (skurðsárið niður) á bökunarpappírinn. Bakið í ofni í um 20 mín. Eða þar til eggaldinið er orðið mjög mjúkt að innan.

  • Takið eggaldinhelmingana úr ofninum og leyfið þeim að kólna örlítið. Notið svo matskeið til að skafa innihaldið úr eggaldinunum og setjið það í sigti. Notið skeið eða gaffal til að hræra og stappa innihaldið í sigtinu þannig að vökvinn fari að mestu úr. Þetta er mjög mikilvægt því annars verður ídýfan of blaut í sér.

  • Flytjið nú eggaldinmaukið í skál og bætið tahini, sítrónusafa, pressuðum hvítlauk, saxaðri steinselju, cumin, salti og ólífuolíu saman við og stappið/hrærið með gaffli. Smakkið til og bætið við sítrónusafa, tahini, cumin eða salti eftir smekk.

  • Setjið í skál og toppið með granateplafræjum (má sleppa) eða smá ólífuolíu. Geymið í kæli þar til borið fram.

Muhammara:

  • Kveikið á ofninum og stillið á um 180°C.  Skerið paprikurnar í helminga og hreinsið fræin úr. Penslið paprikurnar með ólífuolíu. Setjið bökunarpappír á ofngrindina og leggið paprikuhelmingana á hvolf (skurðsárið niður) á bökunarpappírinn. Bakið í ofni í um 20 mín. eða þar til paprikurnar eru orðnar mjúkar og dökkar að utan.

  • Takið paprikurnar úr ofninum og leyfið þeim að kólna örlítið. Notið fingurna til að toga húðina af paprikunum og setjið þær því næst í matvinnsluvél.

  • Ristið valhneturnar í smá stund á pönnu og bætið þeim saman við paprikurnar í matvinnsluvélinni ásamt restinni af hráefnunum. Blandið saman þar til ídýfan er orðin mjúk en örlítið kornótt.

  • Ef ídýfan er of þunn má bæta við brauðmylsnu eða setja meira af valhnetum. Smakkið svo til með sítrónusafa og salti

  • Berið fram í skál og toppið með söxuðum valhnetum eða ferskri steinselju.

Raita (jógúrtsósa):

  • Rífið gúrku smátt á rifjárni og reynið að kreista vökvann frá eins vel og hægt er.

  • Pressið hvítlaukinn og blandið síðan saman öllum hráefnunum. 

Tahini sósa:

  • Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið þar til úr verður silkimjúk sósa. Smakkið til og bætið við sítrónusafa, hlynsýrópi eða salti eftir smekk.

  • Ef til er fersk steinselja eða kóríander er gott að saxa það smátt og hræra út í tahini sósuna ásamt örlitlu cumin dufti.

Falafel bakki (samsetning):

  • Kveikið á ofninum og stillið á 180°C.

  • Setjið falafel bollurnar í eldfast mót eða á bökunarplötu og bakið í um 20-30 mínútur eða þar til þær eru stökkar að utan.

  • Skerið pítubrauðin langsum og svo í 4 sneiðar. Leggið sneiðarnar á bökunarplötu og dreifið ólífuolíu yfir þær og stráið sjávarsalti yfir. Bakið brauðin í um 10 mínútur, þar til þau eru byrjuð að brúnast.

  • Setjið ídýfurnar (hummus, baba ganoush og muhammara) í skálum á stóran bakka ásamt jógúrtsósunni og tahini sósunni. Setjið falafel bollurnar einnig á bakkann ásamt kirsuberjatómötum, gúrkum og papriku sem skornar eru í strimla og ólífunum. Setjið loks pítubrauðin í sneiðum á bakka og berið fram.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift