Silkimjúkur smoothie með súkkulaðibragði – þessi smoothie nærir bæði líkama og sál. Fullkominn fyrir morguninn, sem millimál, eftir æfingu eða hvenær sem þig langar í eitthvað sætt og næringarríkt.
Þessi súkkulaði-hnetusmjörssmoothie er sannkölluð vellíðunarbomba í glasi – nærandi, orkumikill og ómótstæðilega góður. Hann sameinar mýkt og sætu bananans, djúpt kakóbragð úr súkkulaðiprótíni og rjómakenndan hnetukeim sem minnir á eftirrétt en nærir líkamann á sama tíma. Ég fæ mér þennan smoothie mjög oft eftir æfingu því hann er svo fljótlegur og næringarríkur. Bananar eru sagðir vera frábærir eftir æfingu því þeir hjálpa til við endurheimt og minnka bólgumyndun í líkamanum. Mikilvægi prótíns eftir æfingar þarf ekki að tíunda en mér finnst hnetur vanmetnar í smoothie. Þær gefa orku sem endist í fleiri klukkutíma – og bragðast svo vel! Döðlur gefa náttúrulegan sætleika, haframjölið bætir við trefjum og plöntumjólkin tryggir mjúka, kremkennda áferð.
Fyrir þá sem vilja næra sig enn betur má bæta út í smoothie-inn hörfræjum, chiafræjum eða hampfræjum. Þau gefa aukna orku, góðar fitusýrur og prótein.

Ég nota súkkulaðiprótínið frá Tropic, íslensku merki sem leggur áherslu á hreina, plöntumiðaða næringu og náttúruleg innihaldsefni. Próteinið inniheldur 20 grömm af plöntupróteini í hverjum skammti og er blanda af auðmeltanlegu bauna- og ríspróteini. Það er auðgað með góðgerlum, trefjum og meltingarensímum sem styðja við jafnvægi og góða meltingu – og þarf ekki einu sinni að geyma í kæli. Avókadóþykkni gefur drykknum silkimjúka áferð, og sætleikinn kemur frá stevíu í stað gervisætuefna. Próteinið er 100% vegan, glútenlaust og án GMO.
Fyrir aðdáendur súkkulaðiprótíns eða prótínsmoothies er hér uppskrift að dásamlegu prótínkaffi sem ég mæli með að allir smakki.
Gott að vita:
Ef eitthvað verður eftir má geyma smoothie-inn í lokuðu íláti í kæli og hrista áður en hann er drukkin aftur. Hann helst ferskur og ljúfur í allt að sólarhring – tilvalinn þegar þú vilt grípa fljótt í nærandi orkubúst á annasömum morgni.
Verði ykkur að góðu!
– Færslan er unnin í samstarfi við Tropic