Þessi karamelluostakaka er syndsamlega góð. Þetta er svona kaka sem maður stelst í um miðja nótt þegar enginn sér til. En þrátt fyrir hvað kakan er dásamlega bragðgóð er hún líka svo holl! Kakan er næringarrík og saðsöm en helsta hráefnið eru hnetur. Fyllingin er mild, létt og örlítið loftkennd þannig að hún bráðnar í munninum. Kremið efst er aftur á móti bragðmikil karamella sem allir ættu að falla fyrir. Auðvelt er að breyta uppskriftinni í glúteinlausa paleo köku með því að sleppa rjómaostinum (Oatly smurostinum) en kakan er líka mjög góð án hans.
Í flestum sambærilegum uppskriftum er talað um að láta kasjúhnetur liggja í bleyti í fleiri klukkustundir eða yfir nótt. Ég hef persónulega aldrei haft þolinmæði í það og set þær því vanalega beint í blenderinn. Það tekur örlítið lengri tíma að ná silkimjúkri áferð en annars finn ég engan mun. Mér finnst mikilvægt að nota bragð- og lyktarlausa kókosolíu í uppskriftina (nota frá Himneskri Hollustu) því annars getur kókosolíu bragðið orðið mjög afgerandi.
Til að fyllingin stífni almennilega (og fái dásamlega áferð) nota ég töfraefnið agar-agar. Ég uppgötvaði þetta frábæra duft fyrir um ári síðan og nota það núna oft í viku. Agar-agar er efni sem er unnið úr sjávarþara og var uppgötvað í Japan fyrir hálfri öld. Þetta ljósa duft er lyktar- og bragðlaust og virkar frábærlega sem vegan þykkingarefni eða matarlím. Ég kaupi agar-agar í heilsuhúsinu en hægt er að velja um flögur eða duft. Duftið er örlítið dýrara en það þarf mun minna af því og er það þægilegra í meðferð, ég mæli því með duftinu. Athugið einnig að það þarf ólíkt magn af flögum og dufti en uppskriftirnar hér miðast allar við duft.
Kakan er ótrúlega falleg og sómir sér vel í veislum. Ef afgangur verður af kökunni mæli ég með að skera hana í sneiðar og geyma í frysti. Það er svo þægilegt að geta gripið sneiðar úr frystinum en þær þurfa nokkrar mínútur til að þiðna. Mér finnst kakan langbest með þeyttum vegan rjóma (t.d. frá Soyatoo) og ferskum jarðarberjum og skornum banönum.
Myndir eftir Aron Gauta Sigurðarson
4 Comments
Alda Lárusdóttir
04/19/2020 at 12:38 am
Mikið er þessi karamelluostakaka girnileg að sjá. Má ég spyrja, hvar fæst agar agar duft? Og til hvers er það notað, er það sæta?
Grænkerar
05/12/2020 at 10:05 am
Agar agar virkar með svipuðum hætti og matarlím og fæst t.d. í Heilsuhúsinu 🙂
Ég nota agar agar mikið í bakstur og einnig í vegan osta.
Guðný Guðmundsdóttir
03/13/2021 at 4:24 pm
Er hægt að nota eitthvað annað en agar agar? Það fæst ekki í Heilsuhúsinu og það er víst hætt að flytja það inn, allavega af þeim sem Heilsuhúsið verslaði það af.
Grænkerar
06/29/2021 at 3:46 pm
Ó! Ekki góðar fréttir.
Ég myndi kíkja í Vegan búðina eftir Agar agar en annars prófa pektín (sultuhleypi) og kæla þá um msk. af blöndunni í einu þar til rétt þykkt næst.