Indversk pítsa

Ég er forfallinn pítsuaðdáandi. Þegar ég var yngri var alltaf heimagerð pítsa á föstudögum og ég einu álegginn sem ég viðurkenndi voru sósa, ostur og pepperóní. Eftir að hafa horft á matreiðsluþátt í sjónvarpinu þar sem var útbúin indversk pítsa með grænu pestói, sveppum, eggaldini, mozzarella osti, lambakjöti og fleiri furðulegum áleggjum hófst vegferð mín inn í heim spennandi pítsuáleggja. Sú vegferð varð heldur betur áhugaverð eftir að ég gerðist vegan og prófa ég mig núna áfram með ólíka vegan osta, baunir, grænmeti, sósur og hnetur.

Þessi pítsa er eins konar óður til indversku pítsunnar sem 12 ára Þórdís eldaði fyrir alla vini sína (ég gat ekki setið ein um þessa uppgötvun) en með einfaldara sniði og að sjálfsögðu vegan. Uppskriftin birtist í Vikunni fyrripart árs 2019 og kemur núna loksins inn á síðuna.

Pítsan inniheldur vegan grænt pestó, eggaldin, rauðlauk, Oatly rjómaost og garam masala kryddaðar kjúklingabaunir. Ég gef ekki uppskrift af pítsadeigi þar sem flestar uppskriftir af þeim eru vegan. Ég mæli hins vegar með að nota spelt í stað hveitis og fyrir þá sem eru með glúteinóþol má nota glúteinlaust hveiti (eða kaupa tilbúna, glúteinlausa botna).

Pítsan er sáraeinföld en bráðholl og bragðgóð. Ég mæli sannarlega með að smakka þessa!

Prenta uppskrift

Hráefni:

(í tvær pítsur)

  • 2 stk pítsudeig, keypt eða heimagert
  • 1/2-1 krukka vegan grænt pestó, t.d. frá Himneskt eða úr Vegan búðinni
  • 1 eggaldin
  • 1/2 askja sveppir
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1 dolla Oatly rjómaostur, blá dolla
  • 1 dós kjúklingabaunir, vökvinn sigtaður frá
  • 1/2 msk garam masala
  • 1 tsk hlynsýróp
  • salt og pipar

Aðferð:

  • Kveikið á ofninum og stillið á 180°C.

  • Skerið eggaldin í þunnar sneiðar og steikið á pönnu upp úr olíu. Kryddið sneiðarnar með salti og pipar og snúið þeim við svo þær brúnist á báðum hliðum.

  • Hellið vatninu af kjúklingabaununum og skolið þær. Steikið kjúklingabaunirnar á pönnu upp úr olíu ásamt garam masala og hlynsírópi. Bætið við salti og pipar eftir smekk.

  • Fletjið út pítsudeig og myndið tvo botna. Smyrjið botnana með grænu pestói. Raðið eggaldinsneiðunum ofan á botnana ásamt skornum sveppum og rauðlauk. Setjið stórar klípur af Oatly-rjómaostinum ofan á og dreifið loks kjúklingabaununum yfir.

  • Bakið pítsurnar í 10-15 mín., eða þar til botninn hefur bakast og osturinn brúnast.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift