Ég er mjög hrifin af sætum kartöflum og man vel eftir því að hafa smakkað þær í fyrsta sinn. Þær eru náttúrulega sætar, mjög mettandi og einstaklega næringarríkar. Mér finnst því tilvalið að nota þær sem grunn í staðinn fyrir t.d. hrísgrjón eða tortillur. Í uppskriftinni eru sætu kartöflurnar bakaðar þar til þær verða mjúkar og ofan á þær kemur rifinn ostur, mexíkósk vegan hakkblanda, ferskt avókadó- og tómatasalsa og að lokum sýrður rjómi og ferskt grænt chili. Lime, kóríander og ferskt chili gefa réttinum ferskt og örlítið sterkt bragð sem passar einstaklega vel með sætu kartöflunum. Þetta er því dálítið eins og taco og bökuð sæt kartafla hafi verið sameinuð í einn rétt: Ofurholl bragðsprengja! Ég hef áður gert svipaða uppskrift, Bökuð sæt kartafla með mexíkóskri fyllingu, en langaði að útbúa aðra útfærslu með vegan hakki og rifnum osti sem væri hentugri fyrir börn (mínir strákar eru nefnilega sjúkir í hakkið frá Ellu Stínu).

Uppskriftin er einföld og hráefnin eru flest eitthvað sem ég á yfirleitt til heima. Það er líka auðvelt að aðlaga hana að því sem maður á til í ísskápnum og bæta við til dæmis maís, svörtum baunum eða öðru grænmeti. Til dæmis væri Chili sin carne mjög gott ofan á sætu kartöfluna
Mér finnst þetta vera fullkominn kvöldmatur þegar mann langar í eitthvað hollt, mettandi og bragðgott, en samt eitthvað aðeins meira spennandi en hinn klassíska hversdagsmat. Uppskriftin er einföld í undirbúningi og hægt að gera flest meðlætið á meðan kartöflurnar eru í ofninum. Og ekki skemmir fyrir að þetta er líka einstaklega fallegur réttur á matarborðið.

Ef þið eruð ekki mikið fyrir sterkan mat má einfaldlega sleppa cayenne-piparnum og nota minna af græna chiliinu. Bökuð sæt kartafla með rifnum osti og hakkblöndu (án cayanne pipars) er mjög barnvænn réttur og strákarnir mínir voru hæstánægðir. Börnin geta svo ráðið hvort þau setji avókadó eða sýrðan rjóma ofan á.
Verði ykkur að góðu!
Uppskriftin er unnin í samstarfi við Ellu Stínu