Morgungrautur: Matcha og bananar

Þessi fagurgræni grautur er gríðarlega hollur og orkugefandi. Í grautinn nota ég Matcha teduft en Matcha te er einhver mesta ofurfæða sem fyrir finnst. Áhrif matcha á heilsuna eru mörg en matha er gríðarlega ríkt af andoxunarefnum og getur þannig minnkað hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og hægt á öldrun. Matcha te er gert úr grænum telaufum en þau eru látin vaxa hægar og eru laufin svo mulin í fíngert duft. Því er maður að neyta sjálfra telaufanna. Matcha te er orkugefandi með ólíkum hætti en t.d. kaffi því orkan sem matcha gefur er jafnari og er matcha því fullkomið til að byrja daginn.

Frá því ég var lítil hef ég nánast alltaf borðað hafragraut í morgunmat. Gamli góði hafragrauturinn var mettandi og fór vel í maga. Í seinni tíð fór mér hins vegar að finnast slíkur hafragrautur ansi einhæfur. Fyrir nokkru síðan uppgötvaði ég nýja tegund af hafragraut og fæ ég mér hann nú í morgunmat alla morgna. Grauturinn er algjört nammi og er í svo miklu uppáhaldi hjá mér að ég fæ mér hann stundum í eftirrétt.

 

Morgungrauturinn kallast á ensku overnight oatmeal og er hann útbúinn kvöldið áður og látinn standa í kæli yfir nótt. Yfir nóttina mýkjast hafrarnir og chia fræin og verður grauturinn virkilega mjúkur áferðar. Grauturinn er svo tekinn úr ísskápnum um morguninn og borðaður kaldur. Um morguninn er gott að setja t.d. skorinn banana, hnetur og fræ út á grautinn.

 

 

Kostirnir við morgungrautinn eru margir. Grauturinn er fljótlegur, hollur, góður og mettandi og er hægt að leika sér endalaust með mismunandi samsetningar. Uppistaðan í grautum eru hafrar og chiafræ en hafrar eru trefjaríkir og mettandi og chiafræ eru flokkuð sem ofurfæða. Chia fræ eru stútfull af omega 3, prótíni, trefjum og andoxunarefnum auk þess sem það hefur góð áhrif á brennslu og meltingu. Það er því frábært að byrja alla daga á chia fræjum. Mér finnst einnig mikill kostur að geta útbúið grautinn kvöldið áður því ég fer oft snemma á fætur og það er þægilegt að geta kippt grautnum með sér á morgnana. Ég geri gjarnan þrjá grauta í einu og á þá til morgunmat í ísskápnum fyrir næstu morgna. Mér finnst mjög skemmtilegt prufa ný tilbrigði af morgungraut og ég get sjaldnast beðið eftir að borða morgunmatinn minn.

 

 

Hér fyrir neðan er uppskrift að grunn-morgungraut. Út í grunninn má svo bæta ýmsum spennandi hráefnum en hér nota ég matcha duft, banana og vanillu. Hægt er að gera grautinn glútenlausan með því að nota glútenlaust haframjöl og glútenlausa mjólk og jógúrt. Einnig má sleppa chiafræjum og minnka þá magnið af plöntumjólk á móti.

 

Myndir eftir Aron Gauta Sigurðarson

 

Prenta uppskrift

Hráefni:

Grunnur:

  • 1 dl hafrar
  • 1 msk chia fræ
  • 1 dl vegan jógúrt, t.d. Oatly eða Alpro
  • 1-2 dl plöntumjólk
  • 1/2 tsk hlynsýróp, eða 2-3 dropar stevía
  • salt

Tilbrigði:

  • 1/2 tsk Matcha teduft
  • 1 tsk vanilla, eða vanilludropar
  • 1/2 banani, skorinn

Aðferð:

  • Blandið öllum hráefnunum saman í nestisbox/krukku og geymið í kæli yfir nótt. Einnig er mjög gott að setja hráefnin í hrærivél og hræra saman í 10-20 mín og svo í nestisbox/krukku. Þá verður grauturinn léttari og loftkenndari.

  • Morguninn eftir er gott að setja t.d. banana og möndluflögur út á grautinn.

2 Comments

  • Áslaug I. Kristjánsdóttir

    06/21/2021 at 6:08 pm

    Góðan dag,

    Hef aðeins verið að lesa í gegnum uppskriftirnar þínar, mjög girnilegar 🙂 en hef eina spurningu, hvers vegna ertu alltaf með jógúrtina í morgungrautunum ? Ég hef bara verið að nota plöntumjólk og það dugar alveg, hver er ávinningurinn með jógúrtinni ?

    Með fyrirfram þakklæti og heilsu-kveðjum,
    Ása.

    1. Grænkerar

      06/29/2021 at 3:40 pm

      Sæl, Áslaug

      Jógúrtinni má vel sleppa en okkur finnst hún gera grautinn bragðbetri og meira “creamy” 🙂

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift