Stuttu eftir að ég varð vegan hélt ég að ekkert gæti komið í staðinn fyrir jóla-lambahrygginn sem var það besta sem ég fékk. Þessi hnetusteik er hins vegar alveg jafn góð, ef ekki bara miklu betri! Hún er mjög hátíðleg og bragðgóð og passar vel með brúnni sósu og sykurbrúnuðum kartöflum. Ég eldaði þessa hnetusteik fyrir síðustu jól og heppnaðist hún frábærlega og vilja foreldrar mínir fá hana aftur í ár. Fersku kryddjurtirnar koma unaðslega út og gefa steikinni hátíðlegt bragð.
Hnetusteikin er holl, góð og glúteinlaus og finnst mér hún sérstaklega skemmtileg vegna þess að öll hráefnin eru elduð saman í einum potti/pönnu. Einhverjum kann að þykja hráefnalistinn heldur langur en ég lofa að hnetusteikin er þess virði. Ekkert mál er að skipta ýmsum hráefnum út (sjá lista að neðan) en einnig er gaman að leika sér með mismunandi krydd og grænmeti. Ég mæli t.d. sérstaklega með að setja þurrkaða villisveppi (smátt skorna) og rauðvín út í blönduna. Þannig fæst enn hátíðlegra og “villtara” bragð.
Þegar ég bý til hnetusteik geri ég vanalega tvöfalda eða þrefalda uppskrift til að eiga í frysti. Mér finnst einnig gott að baka hnetusteikina í muffinsformum úr sílíkoni til að geta tekið litlar sætar hnetusteikur með mér í nesti. Í þetta sinn gerði ég tvöfalda uppskrift og sýna meðfylgjandi myndir því tvöfalt magn af hráefnum.
Mér finnst hnetusteik æðisleg á jólunum, en ég veit ekki hátíðlegri mat. Það skemmtilega við að elda sína eigin hnetusteik er að geta smakkað til og kryddað og gert jólamatinn þannig algjörlega eftir eigin hefðum og bragðlaukum.
Myndir eftir Aron Gauta Sigurðarson
12 Comments
Ólöf Rún
12/25/2018 at 1:32 pm
Frábær hnetusteik, auðveld og bragðgóð 👍 mæli með þessari uppskrift
Marta Kristín
11/24/2019 at 9:18 pm
Hvað er uppskrifin fyrir marga?
Grænkerar
11/24/2019 at 9:45 pm
Uppskriftin nægir í einn hleif eins og sést á myndunum. Hnetusteikin er matarmikil og seðjandi og svona hleifur dugar líklega fyrir um 6 manns. Við höfum verið 3 að deila honum á aðfangadag og eigum vanalega um helming eftir í afgang.
Marta Kristín
11/25/2019 at 10:58 pm
Takk fyrir greinargott svar
Gulla
06/24/2020 at 12:45 pm
Hvernig smakkast þessi köld? Myndi hún henta sem kaldur smáréttur ef hún er matreidd í möffinsformum?
Grænkerar
06/24/2020 at 12:49 pm
Ég held að það gæti komið vel út 🙂 spurning um að hafa þá kalda sósu eða t.d. kalda sætkartöflumús ofan á.
Iris
12/17/2020 at 1:25 pm
Væri mögulegt að pakka þessari inn í smjördeig? Og áttu uppskrift að góðri sósu sem passar með steikinni?
Grænkerar
12/17/2020 at 3:46 pm
Sæl, ég held að það gæti komið mjög vel út að pakka hnetusteikinni inn í smjördeig, ætlaði einmitt að prófa það sjálf á næstunni. Er ekki með neina uppskrift að sósu en mér finnst einfalt að nota TORO Peppersaus sem grunn (hún er nefnilega vegan) og bragðbæta hana með sveppum og grænum kryddum.
Unnur
12/17/2023 at 6:49 pm
Má frysta steikina eftir eldun?
Grænkerar
02/11/2024 at 3:56 pm
Já, ég á alltaf nokkra aukaskammta af hnetusteikinni í frysti.
þórey Sigurbjörnsdóttir
12/16/2021 at 12:48 pm
Virkilega góð steik 🙂
Sólveig
12/21/2023 at 7:45 am
Sú besta sem ég hef smakkað og ég tala ekki um þegar maður hefur gert hana nokkrum sinnum og gert hana að ,,sinni” með uppáhaldshnetunum o.flr. Sósan henna Ellu Stínu passar glimmrandi við þessa.