Ég kynni nýju uppáhaldsgrillsamlokuna þína: súrdeigsbrauð, spicy mæjó, þroskað avókadó, ferskir tómatar og rifinn, sterkur vegan ostur frá Ellu Stínu, sem bráðnar dásamlega og gefur réttinum dýpt. Þetta er ekki bara bragðmikill réttur heldur fullkomið nesti í vinnuna eða skólann, frábær viðbót í sunnudagsbrunchinn eða einfaldur kvöldverður á annasömum degi. Ég byggði uppskriftina á samloku sem ég fæ mér reglulega á kattakaffihúsinu – ég mæli mikið með að smakka hana. Þar kynntist ég fyrst töfrunum sem verða þegar avókadó, tómatar og spicy mæjó koma saman í grillsamloku.

Súrdeigsbrauðið er stökk og mjúkt á sama tíma með sínum náttúrulegu súra keim sem ýtir undir önnur bragðefni. Avókadóið bætir við kremkenndri áferð og er ríkt af hollum fitusýrum og næringarefnum. Tómatarnir bæta ferskleika en spicy mæjóið gefur mýkt og ásamt sterka ostinum stuðlar að þessum sterka karakter sem mér finnst ómissandi í samlokuna.
Kraftmikil máltíð fyrir þá sem vilja láta bragðið ráða ferðinni.
Verði ykkur að góðu!
– Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ellu Stínu