Hver elskar ekki klassíska kombóið: hnetusmjör og sultu? Mínir drengir eru sjúkir í hnetusmjör, hvort sem það er út á hafragraut, á epli eða banana, í booztið eða á brauð ásamt sultu. Í sumar prófaði ég því að gera kökubita með hnetusmjöri og sultu. Niðurstaðan eru orkubitar sem eru fullkomnir í nestisboxið, sem fljótleg orka yfir daginn eða þegar mann langar einfaldlega í eitthvað gott. Fullt nestisbox af þessum bitum var tekið með í útileguna og hurfu þeir hratt ofan í krakka jafnt sem fullorðna.

Hafrar og hnetusmjör gera bitana matarmikla og seðjandi á meðan St. Dalfour jarðarberjasultan gefur þeim sætt og ferskt berjabragð. Bitarnir eru ekki of sætir og henta því jafnt börnum sem fullorðnum. Fyrir ykkur sem eruð hrifin af meiri sætu má vel auka aðeins magnið af púðursykri eða sultu í uppskriftinni. Fyrir fólk með glútenóþol hef ég skipt út hveitinu fyrir glútenlaust hveiti með góðum árangri. Passið bara að nota einnig glútenlaust haframjöl.

Uppskriftin er einstaklega einföld í framkvæmd. Deigið er pressað í mót, sultan kemur í miðjuna og restinni af deiginu er dreift yfir í grófum mulningi. Útkoman er ilmandi og notaleg heimabökuð PB&J-sæla með stökkum toppi og mjúkri miðju. Mér finnst líka sérstaklega skemmtilegt að þetta sé uppskrift sem er auðvelt að gera með krökkunum, þau geta hjálpað til við að blanda deigið, dreifa sultunni og að sjálfsögðu að mylja deigið yfir toppinn.

Gott í útivistina, í nestisboxið, eftir æfingar eða bara með kaffinu.
Bitarnir geymast vel í lokuðu boxi og eru því tilvaldir til að baka um helgi og eiga tilbúna fyrir vikuna.
Ef þú átt litla PB&J-aðdáendur heima má auðvitað skera bitana í minni sneiðar fyrir litlar hendur. Ef einhverjir bitar verða eftir í boxinu, sem er alls ekki sjálfgefið hér á heimilinu, eru þeir ljómandi góðir dagana eftir.

Verði ykkur að góðu!
Uppskriftin er unnin í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM