Sumarleg og fersk hindberjaostakaka með kókos- og sítrónukeim sem tekur korter að útbúa og þarfnast engra eldhústækja – aðeins einfaldra áhalda!
Þessi sumarlega og ferska hindberjaostakaka er einföld í gerð og hentar vel þegar þú vilt útbúa eitthvað gott án mikillar fyrirhafnar. Botninn er gerður úr Póló kókoskexi sem gefur bragðgóða og stökka áferð, Abbot Kinney’s kókosjógúrtin gerir fyllinguna létta og silkimjúka en fersklegur hindberjatoppurinn fullkomnar bragðið.

Kakan er ekki bökuð og tekur stuttan tíma að setja saman. Botninum er þrýst í form, fyllingunni hrært saman í nokkrum einföldum skrefum og síðan fær kakan að taka sig í kæli þar til hún stífnar en hana má þó vel bera fram strax. Rétt áður en hún er borin fram er toppurinn settur á – hindber og St. Dalfour hindberjasulta sem gefa bæði fersjab lit og gott jafnvægi á milli sætu og sýru. Mig langaði að gera köku sem mætti bera fram jafnt í útskriftarveislu en væri einnig hægt að galdra fram uppi í bústað eða í útilegu.
Fullkomin kaka þegar þig langar í eitthvað fljótlegt, fallegt og bragðgott – hvort sem er fyrir gesti eða bara til að njóta.