Prótínríkur jarðarberjahristingur

Ég er búin að vera sjúk í þennan hristing/smoothie seinustu daga enda er hann svo ótrúlega einfaldur og ég á alltaf nóg af innihaldsefnunum. Mig langaði að útbúa mildan prótínríkan smoothie sem minnti helst á það sem kallast „strawberry milkshake“. Það heppnaðist ekkert smá vel og úr varð þessi holla, sykurlausa, glútenlausa og vegan uppskrift sem veitir góða orku og seddu.

 

 

 

Ég fæ mér þennan smoothie mjög oft eftir æfingu því hann er svo fljótlegur og næringarríkur. Bananar eru sagðir vera frábærir eftir æfingu því þeir hjálpa til við endurheimt og minnka bólgumyndun í líkamanum. Jarðarber eru stútfull af vítamínum og innihalda mikið magn andoxunarefna. Þar að auki innihalda þau lítið magn af kaloríum. Prótínið sem ég nota kemur frá Plantforce en ég smakkaði þau á kynningarfundi Veganúar og varð strax forfallinn aðdáandi. Eftir það fórum við í samstarf við Uglan Shop sem flytja prótínduftin til landsins og selja í vefverslun sinni og stærri Hagkaupsverslunum.

 

 

 

Duftin eru vegan, glúteinlaus, laus við soja og hrá. Þau eru eingöngu með náttúrulegum bragðefnum og bragðbætt með stevíu og henta því vel þeim sem eru að sleppa sykri. Þar fyrir utan þá bragðast þau dásamlega. Í þessari uppskrift nota ég vanilluprótínið, en það er í uppáhaldi hjá mér. Einnig má fá prótínið með berjabragði, súkkulaði bragði og hreint (bragðlaust). Ég mun svo koma til með að gera fleiri prótínbombur á næstunni, en mér finnst prótínduft frábær leið til að auka næringarinntöku.

 

Myndir eftir Aron Gauta Sigurðarson

Prenta uppskrift

Hráefni:

  • 2 lúkur frosin jarðarber
  • 1/2 banani
  • 1 skeið vanilluprótín, 20 g
  • 3 dl vegan mjólk, t.d. sykurlaus kókosmjólk
  • 1 dl kókosmjólk í dós, þykki hlutinn

Aðferð:

  • Hráefnin eru sett í blender og blandað þar til silkimjúkt. Einnig getur verið gott að bæta nokkrum klökum út í og blanda þá með.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift