Morgungrautur: Bláber og kanill

Þessi grautur er uppáhaldsgrautur pabba en á hverjum einasta morgni tekur hann einn svona með sér í vinnuna. Grauturinn er mjög einfaldur en í honum eru bara bláber og kanill. Bláber eru flokkuð sem ofurfæða en þau innihalda gífurlegt magn andoxunarefna. Bláber eru með hátt næringargildi en lítið af kaloríum og geta einnig lækkað blóðþrýsting og hægt á öldrunareinkennum. Þessi grautur er því sannkallaður ofurgrautur og ekki furða að þríþrautarkappi eins og pabbi minn kjósi að borða hann alla morgna.

Frá því ég var lítil hef ég nánast alltaf borðað hafragraut í morgunmat. Gamli góði hafragrauturinn var mettandi og fór vel í maga. Í seinni tíð fór mér hins vegar að finnast slíkur hafragrautur ansi einhæfur. Fyrir nokkru síðan uppgötvaði ég nýja tegund af hafragraut og fæ ég mér hann nú í morgunmat alla morgna. Grauturinn er algjört nammi og er í svo miklu uppáhaldi hjá mér að ég fæ mér hann stundum í eftirrétt.

 

Morgungrauturinn kallast á ensku overnight oatmeal og er hann útbúinn kvöldið áður og látinn standa í kæli yfir nótt. Yfir nóttina mýkjast hafrarnir og chia fræin og verður grauturinn virkilega mjúkur áferðar. Grauturinn er svo tekinn úr ísskápnum um morguninn og borðaður kaldur. Um morguninn er gott að setja t.d. skorinn banana, hnetur og fræ út á grautinn.

 

 

Kostirnir við morgungrautinn eru margir. Grauturinn er fljótlegur, hollur, góður og mettandi og er hægt að leika sér endalaust með mismunandi samsetningar. Uppistaðan í grautum eru hafrar og chiafræ en hafrar eru trefjaríkir og mettandi og chiafræ eru flokkuð sem ofurfæða. Chia fræ eru stútfull af omega 3, prótíni, trefjum og andoxunarefnum auk þess sem það hefur góð áhrif á brennslu og meltingu. Það er því frábært að byrja alla daga á chia fræjum. Mér finnst einnig mikill kostur að geta útbúið grautinn kvöldið áður því ég fer oft snemma á fætur og það er þægilegt að geta kippt grautnum með sér á morgnana. Ég geri gjarnan þrjá grauta í einu og á þá til morgunmat í ísskápnum fyrir næstu morgna. Mér finnst mjög skemmtilegt prufa ný tilbrigði af morgungraut og ég get sjaldnast beðið eftir að borða morgunmatinn minn.

 

 

Hér fyrir neðan er uppskrift að grunn-morgungraut. Út í grunninn má svo bæta ýmsum spennandi hráefnum en hér nota ég bláber og kanil. Hægt er að gera grautinn glútenlausan með því að nota glútenlaust haframjöl og glútenlausa mjólk og jógúrt. Einnig má sleppa chiafræjum og minnka þá magnið af plöntumjólk á móti.

 

Myndir eftir Aron Gauta Sigurðarson

Prenta uppskrift

Hráefni:

Grunnur:

  • 1 dl hafrar
  • 1 msk chia fræ
  • 1 dl vegan jógúrt, t.d. Oatly eða Alpro
  • 1-2 dl plöntumjólk
  • 1/2 tsk hlynsýróp, eða 2-3 dropar stevía
  • salt

Tilbrigði

  • 1/2-1 dl frosin bláber
  • kanill, eftir smekk

Aðferð:

  • Blandið öllum hráefnunum saman í nestisbox/krukku og geymið í kæli yfir nótt. Einnig er mjög gott að setja hráefnin í hrærivél og hræra saman í 10-20 mín og svo í nestisbox/krukku. Þá verður grauturinn léttari og loftkenndari.

  • Morguninn eftir er gott að setja t.d. fersk banana og möndluflögur út á grautinn.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift