Kasjúhnetupiparostur og chilisulta

Prep time:

Cook time:

Serves:

Mér finnst fátt skemmtilegra en að útbúa minn eigin vegan ost. Kasjúhnetur eru uppistaðan í heimagerðu ostunum mínum en þegar þær eru settar í blender ásamt vökva verður úr silkimjúkt mauk. Osturinn fær hins vegar bragð sitt úr næringargeri, sítrónusafa, og hlynsýrópi. Galdrahráefnið er síðan hið furðulega efni agar-agar. Þegar hráefnin fyrir ostinn eru sett í blandara verður úr silkimjúkt mauk sem bragðast svipað og ostur. Þegar osturinn er hins vegar kældur stífnar hann og fær unaðslega áferð.

 

 

 

Agar-agar er efni sem er unnið úr sjávarþara og var uppgötvað í Japan fyrir hálfri öld. Þetta ljósa duft er lyktar- og bragðlaust og virkar frábærlega sem  vegan þykkingarefni eða matarlím. Ég kaupi agar-agar í heilsuhúsinu en hægt er að velja um flögur eða duft. Duftið er örlítið dýrara en það þarf mun minna af því og er það þægilegra í meðferð, ég mæli því með duftinu. Mikilvægt er að blanda duftinu við vökva og hita að suðu til að virkja efnið.

 

 

Að neðan er einnig uppskrift að heimagerðri chili-sultu. Ég smakkaði heimagerða chili-sultu fyrst fyrir um ári síðan og hef verið sjúk í hana síðan þá. Mér finnst eiginlega nauðsynlegt að eiga alltaf til a.m.k. eina krukku af chili-sultu í ísskápnum. Í sultuna er líka notað agar-agar en einnig mætti nota sultuhleypi (pektín). Sultan er gerð úr ferskum chiliávöxtum og rauðum og appelsínugulum paprikum. Ég nota hrásykur í þessari uppskrift en næst langar mig að prófa að minnka magn sykurs enn meira og nota t.d. stevíu á móti.

Prenta uppskrift

Hráefni:

Kasjúhnetupiparostur

  • 1,5 dl kasjúhnetur
  • 2 dl sykurlaus plöntumjólk, t.d. sojamjólk
  • 1/2 tsk agar-agar
  • 1,5 msk sítrónusafi
  • 1/2 hvítlauksrif, má sleppa
  • 1/2 dl kókosolía, bragð- og lyktarlaus
  • 1/2 tsk hlynsýróp
  • 1 msk næringarger
  • 1/4 tsk salt, eða eftir smekk
  • svartur pipar, eftir smekk

Chili-sulta

  • 5 stk chili-pipar
  • 1 rauð paprika
  • 2 appelsínugular paprikur
  • 50 ml eplaedik
  • 100 g hrásykur
  • 1/2 tsk agar-agar

Aðferð:

Kasjúhnetupiparostur

  • Leggið kasjúhnetur í bleyti í 3 klst. eða yfir nótt. Þessu má þó sleppa ef notaður er öflugur blandari.

  • Setjið plöntumjólk og agar-agar í pott og hitið að suðu.

  • Setjið öll hráefnin í blandara og blandið þar til silkimjúkt. Smakkið til og bætið við sítrónusafa, salti og svörtum pipar eftir smekk.

  • Setjið blönduna loks í sílíkonmót eða lítið smelluform og geymið í kæli þar til osturinn hefur stífnað.

  • Eftir að osturinn stífnar er fallegt að þekja hann með muldum, svörtum pipar.

Chili-sulta

  • Fræhreinsið paprikurnar en ekki hreinsa fræin úr chili-ávöxtunum.

  • Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og blandið þar til þau hafa maukast vel.

  • Setjið blönduna í pott og sjóðið í 10 mín.

  • Hellið loks sultunni í hreinar krukkur.

1 Comments

  • Iris

    01/08/2021 at 11:49 am

    Hæ, líst rosalega vel á þennan ost og ætla að prufa um leið og ég kaupi agar agar. Veistu ca. Hvað hann geymist lengi í kæli og heldurðu að það sé hægt að frysta hann?

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift