Hummuspasta

Þessi uppskrift af hummuspasta er svo einföld en gríðarlega holl, saðsöm og næringarrík. Ég elda pasta ekkert rosalega oft en þegar ég geri það þá finnst mér mikilvægt að rétturinn innihaldi prótín og grænmeti. Ég er hins vegar mjög hrifin af mildu, rjómakenndu pasta og varð þessi uppskrift til þegar ég reyndi að sameina þetta allt.

 

 

 

 

Ljósmyndari: Aron Gauti Sigurðarson

Með því að nota hummus sem uppistöðuna í sósunni fæst gríðarlega næringarríkur og prótínríkur réttur sem bragðast hins vegar eins og versta óhollusta. Ásamt hummusnum nota ég kókosmjólk í dós en hún gefur rjómakennda áferð og bragð. Ég toppaði þetta svo með blöndu af uppáhaldsgrænmetinu mínu: brokkólíi, sveppum og spínati.

 

Hummus á sér langa sögu en hann er upprunninn í Mið-Austurlöndum og er ýmist notaður sem ídýfa eða smurálegg. Uppistaðan í hummus eru kjúklingabaunir en við þær er blandað tahini (sesamsmjör), hvítlauk, sítrónusafa, salti og ólífuolíu. Hummus er próteinríkur, trefjaríkur og stúfullur af vítamínum og steinefnum (t.d. B-vítamíni og járni).

 

Ljósmyndari: Aron Gauti Sigurðarson

 

 

Í uppskriftina má nota keyptan hummus en ég mæli þó með því að búa til sinn eigin. Það er nefnilega ótrúlega auðvelt, fljótlegt og ódýrt að gera sinn eigin hummus og þá er hægt að smakka hann til og bragðbæta eftir eigin höfði. Uppskriftina má einfalda og notast við það sem er til í ísskápnum. Einnig má gera uppskriftina „fínni“ og bæta t.d. hvítvíni út í sósuna og bera fram gott hvítlauksbrauð með pastanu. Uppskriftina má auðveldlega gera glútenlausa með því að nota glútenlaust pasta. Einnig hef ég prófað að nota pasta úr sojabaunum og það kom skemmtilega á óvart.

 

 

Ljósmyndir: Aron Gauti Sigurðarson

Prenta uppskrift

Hráefni:

Hummuspasta

  • 200 g pasta
  • 1 askja sveppir
  • 200 g brokkólí
  • 1 laukur
  • 100 g spínat
  • 3 dl hummus, heimagerður eða úr búð
  • 1 dl pastasoð
  • 1 dl kókosmjólk í dós, þykki hlutinn
  • 2 tsk sítrónusafi
  • salt og pipar

Hummus:

  • 1 dós kjúklingabaunir
  • 1 msk tahini
  • 1 msk sítrónusafi
  • 1-2 hvítlauksrif
  • 1 tsk tamarisósa, eða sojasósa
  • 1/2 tsk cumin
  • salt og pipar
  • cayanne pipar

Aðferð:

Hummuspasta:

  • Skerið lauk, sveppi og brokkólí niður og steikið á pönnu þar til sveppirnir hafa mýkst.

  • Sjóðið pastað nokkrum mínútum styttra en leiðbeiningar segja til um. Sigtið vökvann frá en haldið 1 dl. eftir.

  • Setjið 1  dl af vökvanum, hummus og kókosmjólk út á pastað og hrærið vel saman.

  • Bætið lauk, sveppum og brokkólíi út í pastað, ásamt spínati. Sjóðið þar til pastað er orðið mjúkt.

  • Bætið loks við sítrónusafa og kryddið með salti og pipar eftir smekk.

Hummus:

  • Setjið sítrónusafa, tahini og kjúklingabaunir í matvinnsluvél og blandið þar til silkimjúkt.

  • Bætið því næst hinum hráefnunum út í og blandið saman í nokkrar sek. Ef erfitt er að ná mjúkri áferð getur hjálpað að bæta við örlitlu vatni.

Gott að hafa í huga:

  • Pastað má taka á næsta stig með því að bæta örlítlu vegan hvítvíni út í hummussósuna og láta sjóða.

Skildu eftir skilaboð

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri uppskrift Næsta uppskrift